Nordiska centerungdomens förbund eða NCF eru samtök ungliðahreyfinga miðjuflokkanna á Norðurlöndunum. Samband ungra framsóknarmanna hefur tekið þátt í starfi NCF í gegnum tíðana og setið þau þing sem að hafa verið. Diljá Helgadóttir meðlimur í SUF situr nú í stjórn NCF.
Þann 3.-4. október mun næsta NCF-þing verða og mun það vera haldið í Kaupmannahöfn. Við höfum kost á því að senda þrjá fulltrúa fyrir hönd SUF.
Við auglýsum eftir fulltrúa fyrir okkar hönd á NCF-þingið í Kaupmannahöfn, mikilvægt er að sá fulltrúi hafi áhuga á alþjóðastarfi SUF í framtíðinni.
Ef að þú hefur áhuga á starfinu, endilega sendu okkur þá póst á suf@suf.is fyrir kl. 09:00 föstudaginn 11. september.
Sömu helgi og þingið er í Kaupmannahöfn fagnar NCF 50 ára afmæli sínu og verður með hátíðarkvöldverð á laugardagskvöldinu, allir sem hafa einhverntíma starfað innan NCF eða starfa nú þegar í NCF eru boðnir velkomnir í kvöldverðinn. Kvöldverðurinn kostar 50€ og allar nánari upplýsingar um afmælið eru á www.mittinorden.com
Kveðja,
Stjórn SUF