Laugardagur 7. febrúar 2015 –
Boðað er til 40. Sambandsþings Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) dagana 7.-8. febrúar 2015 á höfuðborgarsvæðinu, nákvæmari staðsetning verður auglýst síðar. Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu.
Samkvæmt grein 4.5 í lögum SUF skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en viku fyrir setningu sambandsþings eða fyrir laugardaginn 1. febrúar. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á netfangið suf@framsokn.is.
SUF-arar hvattir til þess að skila inn tillögum að ályktunum sem fyrst á netfangið suf@framsokn.is. Þær tillögur sem liggja fyrir laugardaginn 1. febrúar verða prentaðar með öðrum þinggögnum. Tillögurnar verða ræddar í þeim sex málefnahópum sem starfandi eru á þinginu.
Samkvæmt grein 6.4 í lögum SUF skal tillögum að lagabreytingum skilað eigi síðar en 14 dögum fyrir setningu þings sambandsins eða fyrir laugardaginn 25. janúar. Tillögum skal skilað á netfangið suf@framsokn.is.
Drög að dagskrá:
Laugardagur 7. febrúar
09.30 – Þingsetning
– Kosning þingforseta (2)
– Kosning þingritara (2)
– Kosning starfsnefndar (3)
09.40 – Skýrsla stjórnar og reikningar
10.20 – Málefnahópar kynntir
10.30 – Málefnahópar taka til starfa
– Hópur 1 – Stjórnskipun, mannréttindi, lýðræði og utanríkismál
– Hópur 2 – Efnahagsmál
– Hópur 3 – Atvinna, samgöngur og umhverfi
– Hópur 4 – Menntun, menning og íþróttir
– Hópur 5 – Velferð
– Hópur 6 – Lagabreytingar og aðrar tillögur
20.00 – Hátíðarkvöldverður og skemmtun fram eftir kvöldi
Sunnudagur 8. febrúar
10.00 – Afgreiðsla mála
12.30 – Hádegismatur
13.15 – Kosningar:
– Formaður
– Stjórn (12)
– Varastjórn (12)
– Skoðunarmenn reikninga (2)
– Varaskoðunarmenn reikninga (2)
16.00 – Þingslit